Okkar markmið eru tvenn: við viljum líka með forriti eftir einstaklingstímum hjá topp skákþjálfara. Það þýðir að við lögum þjálfunina að þér bæði styrkleikum þínum og veikleikum með það að markmiði að bjóða uppá þá þjálfun sem nýtist þér sem best.
Hitt markmiðið okkar er að þróa aðferðir sem hámarka hugræna bætingu. Einnig hér viljum við að tími okkar notenda nýtist sem best við að ná árangri.
Við vinnum með framúrskarandi vísindamönnum með nýjustu tækni og gervigreind í farteskinu að því að ná þessum tveimur markmiðum.
Skák hefur verið lýst sem samblandi af íþrótt, vísinda- og listgrein. Þessi breiða skýrskotun ásamt háu flækjustigi þýðir að það er heilmikið rými fyrir persónulegan stíl.
Þetta þýðir einnig að skák er vel til þess fallin að stuðla að hugrænni bætingu. Skv. Basak og Caretti et al. 2014 þá tengjum við fram frontal og parital svæði heilans þegar við teflum skák.
Rannsóknir sýna að skák getur leitt til bætingar á hugrænum sviðum á borð við:
Þessir hugrænu eiginleikar eru þeir sömu og eru taldir mikilvægastir fyrir Fjórðu Iðnbyltinguna, sjá viðtal við Jack Ma forstjóra AliBaba:
https://www.youtube.com/watch?v=pa2EMaGPZKc